Færsluflokkur: Bloggar
28.3.2013 | 02:56
Nýja Ísland andvana fætt
Fyrir rúmum fjórum árum síðan stóð ég á Austurvelli og barði gat á trommuna mína sem ég hafði barið án afláts í nokkra daga..Ég hætti ekki fyrr en að hersing lögreglumanna stormaði út úr Alþingishúsinu og inn á miðjan Austurvöll til að skjóta táragasi yfir hóp fólks sem hafði ekki minnstan grun um þær riskingar sem áttu sér stað hinum meginn við löggjafarsamkunduna..Ekki það að ég hafi hætt að berja trommuna út af táragasinu sem ég hljóp undan..Ég hefði haldið áfram..Ríkisstjórnin bara sagði af sér..
Það var nefnilega ein af kröfunum á þeim tíma..hinar voru Seðlabankastjórann burt og ný stjórnarskrá...Við ætluðum nefnilega að stofna NÝTT ÍSLAND!!
Framsóknarflokkurinn varði minnihlutastjórn Samfylkingar og VG gegn því að minnihlutastjórnin uppfyllti það sem kom fram í eftirfarandi tilkynningu :
"Strax verði ráðist í aðgerðir til að koma til móts við skuldsett heimili í landinu og bæta rekstrarskilyrði íslensks atvinnulífs. Í því felist meðal annars að mörkuð verði stefna í gjaldmiðilsmálum þjóðarinnar. Jafnframt verði komið á stjórnlagaþingi sem semji nýja stjórnarskrá íslenska lýðveldisins"
Það er því ekkert skrýtið að maður hafi verið bjartsýnn í ársbyrjun 2009..
En fólk man það sem það vill muna..
Vorið 2009 reyndu Framsóknarflokkurinn, Samfylkingin og VG að koma í geng breytingum á Stjórnarskrá...Breytingarnar voru eftirfarandi:
1. Auðlindarákvæði
2, Breytingar á Stjórnarskrá það sem 25% þeirra á kjörskrá þurfti til að staðfesta breytingu
3. Þjóðaratkvæðisgreiðslur með sama hlutfall fylgjandi og að ofan.
4. Skipun Stjórnlagaþings..
Vorið 2009 urðu þessar tillögur að engu enda lögðust Sjálfstæðismenn í marathon málþóf sem þeir fengu að stunda allt fram að kosningum..
Engu að síður var maður bjartsýnn eftir kosningarnar 2009 að komið væri til valda fólk sem myndi standa undir þeim væntingum að þora að breyta því sem þurfti að breyta. Í kjölfarið kom svo Þjóðfundur, Stjórnlagaráð og loks þjóðaratkvæðagreiðsla um niðurstöðu þeirrar vinnu.
Nýja Ísland var teymt áfram á asnaeyrunum.
Svo komum við að sirkusnum sem er búinn að vera í gangi við Austurvöll undanfarnar vikur..
Samningaviðræður í lokuðum herbergjum um það hvernig eigi að koma í veg fyrir margra vikna málþóf flokka sem draga eigið Auðlindarákvæði beint upp úr skýrslu Davíðs og Halldórs frá 2000, auðlindarákvæði með óbeinum eignarrétti sem LÍÚ vill fyrir alla muni skjalfesta..
Ríkisstjórnin virðist að meira að segja hafa meiri áhyggjur af því að skapa slæmt fordæmi með því að takmarka ræðutíma minnihlutans á Alþingi heldur en að hundsa þjóðaratkvæðagreiðslu sem hún sjálf boðaði til...Í lýðræðissamfélagi kallast hundsun þjóðaratkvæðis, valdarán..
Hvar erum við svo í dag?
1. Ekkert Auðlindaákvæði
2. Breyting á stjórnarskrá þar sem þarf 2/3 þingmenn og 40% stuðning kosningabærra manna.
3.Engar þjóðaratkvæðagreiðslur.
Ég horfði á atkvæðagreiðlsuna í kvöld og ég uppgötvaði þar sem ég sat með tárin í augunum eftir að niðurstaða var fengin, að ég er tíu sinnum svekktari árið 2013 en ég var bjartsýn árið 2009.
Þetta var verra en ekkert..
Breyting á stjórnarskrá samþykkt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
7.3.2013 | 22:37
Framsókn og LÍÚ í sömu sæng...ennþá..
Já..flokkurinn sem forðum daga var uppnefndur Framasóknarflokkurinn felldi grímuna með tilþrifum í gær..Sumir, meira segja ég, hafði leyft mér að láta það hvarfla að mér að kannski væri "nýjum" Framsóknarflokki treystandi..
Svo las ég þetta, málamiðlunartillögu flokksins:
"Náttúruauðlindir og landsréttindi í þjóðareign má ekki selja eða láta varanlega af hendi
til einstaklinga eða lögaðila. Þó má veita þeim heimild til afnota eða hagnýtingar á þessum
auðlindum og réttindum gegn gjaldi, að því tilskildu að hún sé tímabundin eða henni megi
breyta með hæfilegum fyrirvara eftir því sem nánar er ákveðið í lögum. Slík heimild nýtur
verndar sem óbein eignarréttindi."
Því næst las ég þetta, kafla í "afstöðu LÍÚ til skýrslu Auðlindanefndar" frá 2000, sömu skýrslu og Framsóknarflokkurinn sækir innblástur sinn í:
"4.5. Aflaheimildir verði strax skilgreindar sem óbein eignarréttindi og sem slíklar framseljanlegar og veðhæfar eins og kemur fram í skýrslu auðlindanefndar."
Í umsögn LÍÚ um frumvarp til stjórnskipunarlaga stendur:
Samtökin telja enga þörf á því að náttúruauðlindir verði lýstar þjóðareign með sérstöku ákvæði í stjórnarskrá þar sem ríkið hefur allar nauðsynnlegar valdheimildir til að kveða á um vernd og nýtingu náttúruauðlinda í krafti fullveldisréttar síns.
Og jafnframt:
Það er óumdeilt að aflaheimildir njóta verndar eignaréttarákvæðis 72. greinar stjórnarskrárinnar sem atvinnuréttindi, sbr. 1. gr. 1. Viðauka við Mannréttindasáttmála Evrópu. Handhafar aflaheimilda hafa haft ótímabundin afnot af aflaheimildum samkvæmt lögum um stjórn fiskveiða og lögum um fiskveiðar utan lögsögu Íslands.
Þetta kemur svo sem engum á óvart...
Í álitsgerð sem LÍÚ lét LEX lögmannsstofu gera fyrir sig varðandi sömu Stjórnskipunarlög stendur:
Rökstutt hefur verið að staða þeirra aðila sem hafa í dag yfir aflaheimildum að ráða sé ekki fyllilega skýr þegar litið er til texta frumvarpsákvæðisins og skýringa í greinargerð með frumvarpinu. Skýringar í greinargerð benda til að ekki sé ætlunin að hrófla við óbeinum eignaréttindum sem þegar hafa stofnast. Hins vegar er ekki kveðið á um slíkt í frumvarpstextanum eða í bráðabirgðaákvæði, en rétt hefði verið að gera það til að eyða allri óvissu. Þannig er stjórnskipuleg vernd aflaheimilda, sem hefur verið úthlutað, ekki staðfest með óyggjandi hætti í frumvarpinu enda þótt vissulega sé gefið í skyn að slík vernd sé til staðar. Með hliðsjón af þessu er ekki unnt að útiloka að frumvarpsákvæðið verði talið skjóta stoðum undir einhvers konar innköllun þegar úthlutaðra aflaheimilda.
Þar höfum við það...Stjórnskipuleg vernd þegar úthlutaðra aflaheimila er ekki staðfest með óyggjandi hætti í Auðlindarákvæði Stjórnlagaráðs og því ekki hægt að útiloka innköllun aflaheimilda..
Já..Framsókn er að hugsa um að hámarka hag þjóðarinn eins og Formaðurinn komst að orði fyrr í dag..
Líkti Framsóknarflokknum við flugeld | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Thelma Birna Róbertsdóttir
Færsluflokkar
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar